Skip to Content
Cat® Power Tools

Af hverju að nota
CAT® verkfæri?

CAT® Power Tools byggja á yfir 100 ára reynslu Caterpillar. Þau sameina afl, endingu og nýjustu tækni í verkfærum sem skila hámarks afköstum þegar á reynir.

Byggt á yfir 100 ára reynslu.

Frá stafnun árið 1925 hefur Caterpillar staðið fyrir styrk, gæði og áreiðanleika. 
Í dag starfar fyrirtækið í nærri 200 löndum og er eitt þekktasta og traustasta vörumerki heims í byggingar- og iðnaðargeiranum. 

CAT® Power Tools eru þróuð á grunni þessarar reynslu — verkfæri sem eru hönnuð fyrir fagfólk og standast raunverulegar vinnuaðstæður.

TABLESSCELL

Battery Technology

Háþróuð rafhlöðutækni frá CAT®

Tablesscell rafhlöðutækni

CAT® verkfæri nota Tablesscell rafhlöðutækni sem skilar stöðugu afli, lengri endingartíma og auknu öryggi. Tæknin er þróuð fyrir krefjandi vinnuaðstæður og tryggir hámarksafköst allan vinnudaginn. 

  • ▸ Stöðugt afl — Heldur jöfnum afköstum frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.
  • ▸ Lengri endingartími — Þolir fleiri hleðsluferla og endist lengur en hefðbundnar rafhlöður.
  • ▸ Hitavörn — Innbyggð hitastýring ver rafhlöðuna gegn afhitnun og stuðlar að auknu öryggi.
  • ▸ Hraðhleðsla — Styttri biðtími svo þú komist fyrr aftur til verka.
Cat® 18V One Battery kerfið

18V One Battery
Eitt rafhlöðukerfi - Endalausir möguleikar

Eitt rafhlöðukerfi fyrir öll CAT® 18V verkfærin þín. Skiptu sömu Li-Ion rafhlöðunni á milli borvéla, saga, slípivéla, ljósa og fleiri verkfæra.

Rafhlöður eru fáanlegar í 2.0Ah, 4.0Ah, 5.0Ah og 8.0Ah. Færri rafhlöður skila sér í minni kostnaði og einfaldar verkfærakistuna.

Cat® Brushless Motor tækni

Burstalaus mótortækni

Burstalaus (brushless) mótortækni skilar meiri afköstum, lengri endingartíma og betri nýtingu rafhlöðunnar.  Þú færð öflugra verkfæri sem endist lengur og krefst minna viðhalds.

  • Allt að 50% lengri endingartími — minni slit og meiri ending.
  • Meira afl úr hverri hleðslu — nýtir rafhlöðuna betur.
  • Léttari og skilvirkari — meiri afköst með minni fyrirhöfn.
  • Minna viðhald — Færri slitfletir og lægri rekstrarkostnaður.
Cat® 18V borvél

Byggð til að endast

CAT® verkfæri eru hönnuð til að standast daglega notkun við krefjandi aðstæður. Ending, áreiðanleiki og öflug afköst eru í fyrirrúmi - svo þú getir einbeitt þér að verkefninu. 

  • Fallprófuð fyrir aukna endingu
  • Álgírkassar fyrir meiri styrk og minni þyngd
  • Ergonomísk hönnun fyrir langa notkun
  • Rafeindavörn gegn afhitnun

Finndu rétta CAT® verkfærið

Yfir 130 CAT® verkfæri á lager. Finndu rétta verkfærið fyrir næsta verkefni.