Skip to Content

Viðskiptaskilmálar

Almennir viðskiptaskilmálar – CAT Powertools

1. Söluveð

Seljandi heldur söluveði, samkvæmt III. kafla, undirkafla G, laga nr. 75/1997 um samningsveð, í seldri vöru eins og hún er skilgreind í reikningi þar til kaupverð vörunnar samkvæmt sölureikningi hefur verið að fullu greitt. Sé greitt með víxlum, skuldabréfum og/eða ávísunum helst söluveðið þar til skuld samkvæmt slíku skjali er að fullu greidd.

2. Greiðsluskilmálar

Gjalddagi reiknings er útgáfudagur, nema annað sé sérstaklega um samið. Viðskiptamenn skulu greiða reikninga í samræmi við tilgreinda skilmála. Dráttarvextir samkvæmt lögum reiknast frá gjalddaga séu reikningar ógreiddir á eindaga.

Seljandi áskilur sér rétt til að fella niður afslátt ef greiðsla dregst fram yfir saminn frest. Ef greiðsla berst ekki vegna fyrri afhendinga getur seljandi stöðvað frekari afhendingar þar til fullnægjandi trygging fyrir greiðslu liggur fyrir.

Seljandi ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af töfum vegna þessa.

3. Sendingar

Vara er send á ábyrgð og kostnað kaupanda nema annað sé sérstaklega um samið. Ef vara er ekki sótt áskilur seljandi sér rétt til að senda hana á kostnað kaupanda eða geyma hana á hans ábyrgð og kostnað. Seljandi getur krafist geymslu- og umsýslugjalds í slíkum tilvikum.

4. Tafir á afhendingu

Seljandi ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem kann að hljótast af töfum á afhendingu, rangri afhendingu eða framleiðslugöllum frá birgjum.

Seljandi ber heldur ekki ábyrgð á tjóni vegna aðstæðna sem hann ræður ekki við (force majeure), svo sem verkfalla, verkbanna, eldsvoða, náttúruhamfara, stríðs eða sambærilegra atvika.

5. Vöruskil

Seljandi tekur við skilum á lagervöru innan 15 daga frá afhendingu. Ekki er um endurgreiðslu að ræða heldur fær kaupandi inneignarnótu.

Vara skal vera í sama ástandi og við afhendingu, ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Kvartanir vegna galla skulu berast seljanda sem fyrst og eigi síðar en innan 8 daga frá afhendingu.

Ef skil eru ekki vegna galla eða mistaka seljanda áskilur seljandi sér rétt til að draga frá kostnað sem hlýst af skilunum.

6. Ábyrgð

Ábyrgðartími á CAT Powertools vörum er 1 ár frá dagsetningu reiknings. Ábyrgð nær til framleiðslu- og efnisgalla og takmarkast við:

  • Viðgerð vörunnar eða
  • Afhendingu varahluta

Kaupandi ber ábyrgð á að koma vöru til viðgerðar. Seljandi ber ekki ábyrgð á afleiddu tjóni sem kann að hljótast af bilun eða göllum. Hámarksbætur takmarkast við kaupverð vörunnar án virðisaukaskatts.

7. Brottfall ábyrgðar

Ábyrgð fellur niður ef:

  • Vara er notuð rangt eða illa með farin
  • Leiðbeiningum framleiðanda er ekki fylgt
  • Varan verður fyrir eðlilegu sliti, tæringu eða veðurskemmdum
  • Raðnúmer hefur verið fjarlægt eða breytt

8. Skaðsemisábyrgð

Um skaðsemisábyrgð fer samkvæmt lögum nr. 25/1991. Seljandi takmarkar ábyrgð sína að því marki sem lög heimila.

9. Ábyrgðarskírteini

Reikningur fyrir vörunni telst jafnframt ábyrgðarskírteini.

10. Neytendakaup

Ef um neytendakaup er að ræða samkvæmt lögum nr. 48/2003 ganga ákvæði þeirra laga framar þessum skilmálum ef þau stangast á.

11. Verð og upplýsingar

Öll verð og upplýsingar eru birt með fyrirvara um prentvillur. Seljandi áskilur sér rétt til verðbreytinga án fyrirvara.

Spurningar um skilmála?

Hafðu samband við okkur:

Sími: 511-1100

Netfang: rymi@rymi.is

© 2026 Caterpillar. All Rights Reserved. CAT, CATERPILLAR, LET'S DO THE WORK, their respective logos, "Caterpillar Corporate Yellow" and Cat "Modern Hex" trade dress are trademarks of Caterpillar. · Dreift af Rými ehf á Íslandi.