Byggt á yfir 100 ára reynslu.
Frá stofnun árið 1925 hefur Caterpillar staðið fyrir styrk, gæði og áreiðanleika. Í dag starfar fyrirtækið í nærri 200 löndum og er eitt þekktasta og traustasta vörumerki heims í byggingar- og iðnaðargeiranum.
Cat® Power Tools eru þróuð á grunni þessarar reynslu — verkfæri sem eru hönnuð fyrir fagfólk og standast raunverulegar vinnuaðstæður.
TABLESSCELL
Battery Technology
Háþróuð rafhlöðutækni frá Cat®
Tablesscell rafhlöðutækni
Cat® verkfæri nota Tablesscell rafhlöðutækni sem skilar stöðugu afli, lengri endingartíma og auknu öryggi. Tæknin er þróuð fyrir krefjandi vinnuaðstæður og tryggir hámarksafköst allan vinnudaginn.
- ▸ Stöðugt afl — heldur jöfnum afköstum frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.
- ▸ Lengri endingartími — Þolir fleiri hleðsluferla og endist lengur en hefðbundnar rafhlöður.
- ▸ Hitavörn — Innbyggð hitastýring ver rafhlöðuna gegn ofhitnun og stuðlar að auknu öryggi.
- ▸ Hraðhleðsla — Styttri biðtími svo þú komist fyrr aftur til verka.

Burstulaus mótórtækni
Burstalaus (brushless) mótortækni skilar meiri afköstum, lengri endingartíma og betri nýtingu rafhlöðunnar. Þú færð öflugra verkfæri sem endist lengur og krefst minna viðhalds.
- Allt að 50% lengri endingartími — minni slit og meiri ending.
- Meira afl úr hverri hleðslu — nýtir rafhlöðuna betur.
- Léttari og skilvirkari — meiri afköst með minni fyrirhöfn.
- Minna viðhald — Færri slitfletir og lægri rekstrarkostnaður.
Byggð til að endast
CAT® verkfæri eru hönnuð til að standast daglega notkun við krefjandi aðstæður. Ending, áreiðanleiki og öflug afköst eru í fyrirrúmi - svo þú getir einbeitt þér að verkefninu.
- Fallprófuð fyrir aukna endingu
- Álgírkassar fyrir meiri styrk og minni þyngd
- Ergonomísk hönnun fyrir langa notkun
- Rafeindavörn gegn ofhitnun